Jæja!
07. maí 2007 klukkan 21:16
Það er alveg spurning um að leggja þessari flottu smartís brúðkaupssíðu. Nú erum við búin að vera gift í rúmlega tvær vikur og líkar vel, ekki spurning! Erum búin að fá myndirnar frá ljósmyndaranum og erum þvílíkt ánægð, nú er bara eftir að fá myndirnar og gestabókina frá henni Írisi, þá fer þetta að verða komið. Við erum bara þvílíkt og endalaust ánægð með þennan tíma og daginn okkar að sjálfsögðu, svo ég tali nú ekki um alla hjálpina sem við fengum, boy oh boy!
Ætla núna að færa mig aftur á gamla bloggið mitt (www.tinnhildur.blogspot.com), en þetta grey (síðan þeas.) set ég í favourites og skoða svona spari
Er að vonast til að ég geti sett myndirnar sem ég á núna, inn á myndasíðu svo það sé hægt að skoða. Það hefur gengið vægast sagt illa hjá mér hingað til.
Takk fyrir að vera til!
Tinna og Finnur líka
Ætla núna að færa mig aftur á gamla bloggið mitt (www.tinnhildur.blogspot.com), en þetta grey (síðan þeas.) set ég í favourites og skoða svona spari
Takk fyrir að vera til!
Tinna og Finnur líka
Kaffiboð/gjafasýning
28. apríl 2007 klukkan 14:37
Skorað var á mig í gær að halda "gjafasýningu" í dag. Þar sem ég var akkúrat að vígja nýju Kitchen Aid hrærivélina í gær þá fannst mér tilvalið að taka þessari áskorun og smella í marengs og skúffuköku. Tókst hvorutveggja svo glimrandi vel að ég eygi þá von um að ég "impressi" tengdafólkið mitt sem er að koma hingað plús hana ömmu mína (sem btw gaf okkur gripinn).
En svo ég ítreki beiðni mína hér fyrir neðan. Ef þið eigið myndir úr brúðkaupinu okkar og/eða veislunni, viljiði senda mér þær á emaili tinnhildur@simnet.is, setja á myndasíðu (t.d. picturetrail.com) og senda mér svo linkinn, nú eða skrifa þær á disk og ég sæki (með nýjan disk í staðinn
). TAKK SO MUKKET!

Hveitibrauðsdagarnir
26. apríl 2007 klukkan 21:30
Mjamm þeir líða frekar furðulega. Eiginmaðurinn minn losnaði úr gifsinu í gær - vei fyrir því! Hann er búinn að vera að vinna langt fram á kvöld í þessari viku, þannig að lítið sér maður hann. Í fyrrinótt veiktist ég af svæsinni upp- og niðurpest og er búin að vera léleg í dag líka. Ætla þó í vinnu á morgun, enda búin að mæta í einn heilan dag og svo einn og hálfan tíma í dag. Ekki góður árangur það.
Eníveis. Ég er búin að setja inn frásögn af brúðkaupsdeginum, á kvöldið eftir, geymi það til morguns. Mér gengur bölvanlega að setja inn fleiri myndir á þessa síðu, það gengur bara alls ekki hjá mér! Skil það ekki.
Langar líka að athuga hvort að einhverjir eigi myndir frá deginum og séu til í að senda mér? Á fáar ennþá og langar að fá fleiri sjónarhorn og bara sjá allt aftur
skiljiði! Er alveg að eipa af spenningi að fá að sjá einhverjar myndir! Plís fólk
*hvolpaaugun*
Eníveis. Ég er búin að setja inn frásögn af brúðkaupsdeginum, á kvöldið eftir, geymi það til morguns. Mér gengur bölvanlega að setja inn fleiri myndir á þessa síðu, það gengur bara alls ekki hjá mér! Skil það ekki.
Langar líka að athuga hvort að einhverjir eigi myndir frá deginum og séu til í að senda mér? Á fáar ennþá og langar að fá fleiri sjónarhorn og bara sjá allt aftur
Oh happy day....!
23. apríl 2007 klukkan 23:18
Litla fjölskyldan fyrir framan Selfosskirkju!

Fleiri myndir og sagan öll væntanlegt á næstu dögum
Stóri dagurinn er upprunninn!
21. apríl 2007 klukkan 08:22
Það er bara komið að þessu! Við erum hér vöknuð fyrir allar aldir eins og venjulega - eigum svo mikil morgunhanabörn. Arndís María vaknaði kl. 06:05 og ég hef ekki sofið síðan.
Við vorum lengi að í gærkvöldi, fórum úr Þingborg um kl. 23. Alltaf eitthvað nýtt að koma upp á, og ég ætlaði varla að komast í burtu. En svo frétti ég að innan við klst síðar var allt tilbúið og allt í góðu
Salurinn er í einu orði sagt GEGGJAÐUR! Snillingar sem þar voru að verki. Hér kemur kreditlistinn: Mamma mín, Fríða syss, Guðbjörg Hulda, Imba frænka, Sigga Árna, Sigurbjörg Agla, Elín og að sjálfsögðu Inga á Langsstöðum, sem hefur farið hamförum í borðauppröðun og alls konar reddingum fyrir okkur! Takk fyrir þúsund sinnum!
Það bættist svo vel í hópinn þegar leið á kvöldið og allir spenntir fyrir morgundeginum. Við hins vegar já drifum okkur heim um kl. 23 og vorum farin að sofa um 00:30. Ég svaf samt hræðilega í nótt, ég skil það bara ekki! Dreymdi að ég var í veislunni en ég var bara föst á sama staðnum í húsinu og komst ekkert á milli staða - glataður draumur sko. En ég held samt að hann þýði að það verði sól og blíða í dag.... haldiði það ekki?????????
Núna er ég að fara að klára að græja slidesjóið og svo ætla ég að kaupa morgunmat handa liðinu í Grundartjörninni. Síðan förum við að pakka okkur og börnunum niður og um hádegi hefjast fegrunar- og háraðgerðir dagsins
Æfingin í kirkjunni gekk rosalega vel og við erum orðin ansi spennt fyrir deginum. Ég er samt frekar stressuð fyrir því að allra augu beinist svo að mér þarna í inngöngunni... en það hlýtur að reddast
Við viljum bara þakka fyrir alla þá frábæru hjálp sem við höfum fengið og þá sérstaklega henni mömmu minni, sem hefur verið mín hægri og nánast líka vinstri hönd í þessum undirbúningi - TAKK! Og þið hin, takk fyrir að lesa og kommenta á þessa síðu, það er bara gaman að lesa kommentin sem þið hafið skrifað
Kveðja frá Álftarimafjölskyldunni!
Tinna og Finnur
Arndís María og Hildur Embla
Við vorum lengi að í gærkvöldi, fórum úr Þingborg um kl. 23. Alltaf eitthvað nýtt að koma upp á, og ég ætlaði varla að komast í burtu. En svo frétti ég að innan við klst síðar var allt tilbúið og allt í góðu
Það bættist svo vel í hópinn þegar leið á kvöldið og allir spenntir fyrir morgundeginum. Við hins vegar já drifum okkur heim um kl. 23 og vorum farin að sofa um 00:30. Ég svaf samt hræðilega í nótt, ég skil það bara ekki! Dreymdi að ég var í veislunni en ég var bara föst á sama staðnum í húsinu og komst ekkert á milli staða - glataður draumur sko. En ég held samt að hann þýði að það verði sól og blíða í dag.... haldiði það ekki?????????
Núna er ég að fara að klára að græja slidesjóið og svo ætla ég að kaupa morgunmat handa liðinu í Grundartjörninni. Síðan förum við að pakka okkur og börnunum niður og um hádegi hefjast fegrunar- og háraðgerðir dagsins
Æfingin í kirkjunni gekk rosalega vel og við erum orðin ansi spennt fyrir deginum. Ég er samt frekar stressuð fyrir því að allra augu beinist svo að mér þarna í inngöngunni... en það hlýtur að reddast
Við viljum bara þakka fyrir alla þá frábæru hjálp sem við höfum fengið og þá sérstaklega henni mömmu minni, sem hefur verið mín hægri og nánast líka vinstri hönd í þessum undirbúningi - TAKK! Og þið hin, takk fyrir að lesa og kommenta á þessa síðu, það er bara gaman að lesa kommentin sem þið hafið skrifað
Kveðja frá Álftarimafjölskyldunni!
Tinna og Finnur
Arndís María og Hildur Embla
20. apríl 2007 klukkan 08:53
Jæja góðan daginn. Helsta áhyggjuefnið þessa stundina er veðrið á morgun. Ég var fyrir lifandis löngu búin að panta sól og sumar á þessum degi, sérstaklega þar sem Sumardagurinn fyrsti var í gær og því engin ástæða til annars en að verða við þessari bón minni. Ennnn.... þetta hérna gefur ekki til kynna að ég fái ósk mína uppfyllta. Svindl!
En nóg um það. Við erum hér sultuslök kærustuparið. Eigum aðeins smotteríis snúninga eftir fyrir hádegi, svo smá fótadekur áður en allt verður vitlaust seinnipartinn. Við fáum salinn fljótlega eftir hádegi og hann verður græjaður væntanlega á tveimur núll einni. Ég fer svo að skoða brúðarvöndinn kl. 17 og svo er æfing í kirkjunni kl. 18. Eftirvæntingarhnúturinn er farinn að gera vart við sig og á mögulega eftir að breytast í magapest síðar í dag
Góðar fréttir samt! Flensan virðist hafa ákveðið að skilja við mig, bara smá hósti eftir en ekkert til að tala um. Frekar gott 
Látum í okkur heyra vonandi á morgun

En nóg um það. Við erum hér sultuslök kærustuparið. Eigum aðeins smotteríis snúninga eftir fyrir hádegi, svo smá fótadekur áður en allt verður vitlaust seinnipartinn. Við fáum salinn fljótlega eftir hádegi og hann verður græjaður væntanlega á tveimur núll einni. Ég fer svo að skoða brúðarvöndinn kl. 17 og svo er æfing í kirkjunni kl. 18. Eftirvæntingarhnúturinn er farinn að gera vart við sig og á mögulega eftir að breytast í magapest síðar í dag
Látum í okkur heyra vonandi á morgun
3 dagar
18. apríl 2007 klukkan 08:46
Ég er komin í frí fram á þriðjudag. Mjög ljúft. Hér gengur allt prýðilega vel og mátulegur fiðringur kominn í alla. Ég er með einhvern flensuskít en ætla að fá 3 daga pensilín hjá doksa á eftir og vera orðin stálslegin á laugardaginn
Þrátt fyrir það þá erum við mamma á leiðinni í Rvk á eftir til að sækja brúðarkjólinn, fötin hans Finns og tertustandinn. Þurfum líka aðeins að versla og svona. Finnur og Arndís María fara eftir hádegi í dag að sækja allan matinn upp í sveit, úrbeining á morgun. Gréta frænka bakar tertur eins og vindurinn þessa dagana og allt er bara að smella. Imba frænka mín elskuleg kemur svo austur í dag til að hjálpa uppáhaldsfrænku sinni með restina. Bara gaman!
Í gær var prufugreiðsla númer 2 og var ákveðið að hún skyldi notuð á laugardaginn, almenn sátt um það
Stelpurnar mínar fengu líka klippingu og eru þrusufínar og sætar 
Við ætlum líka að passa okkur á að njóta þessara síðustu daga í botn, þessi tími kemur sko ekki aftur
Í gær var prufugreiðsla númer 2 og var ákveðið að hún skyldi notuð á laugardaginn, almenn sátt um það
Við ætlum líka að passa okkur á að njóta þessara síðustu daga í botn, þessi tími kemur sko ekki aftur
Yeah
16. apríl 2007 klukkan 23:48
Jæja jæja jæja. Þetta styttist óðfluga. Það er ekki laust við að það sé kominn spenningur í mannskapinn! Þessa dagana er verið að redda hinu og þessu, hringja í hinn og þennan, sækja hitt og þetta osfrv. Í dag t.d. þá sóttum við mamma mjöðinn góða sem við (og þið) ætlum að gæða okkur á á laugardaginn. Svo fer ég í prufugreiðslu nr. 2 á morgun og stelpurnar verða klipptar. Svo verður eiginlega mest að gera hjá okkur á miðvikudag og föstudag náttla. Fimmtudagurinn er asnalegur að því leyti að það er rauður dagur og því ekki allir þeir staðir opnir sem maður þyrfti að komast á.
Annars þá erum við tilvonandi hjónin líka bókuð í læknisheimsóknir á miðvikudaginn, allt til þess gert að við verðum ekki "haltur leiðir fatlaðan" á lau. Ég er btw hölt eftir smá slys í ungbarnasundi síðasta laugardag (don´t ask sko) og þarf að fá sprautu í hægra hnéð. Finnur þarf að fá nýtt gifsi þar sem hans núverandi er meira svart en hvítt.
En já, það er bara allt í gúddí en sem komið er. Finnur er reyndar eitthvað slappur ennþá eftir helgina, en hann var nefnilega TEKINN og steggjaður á föstudaginn. Hlakka til að sjá vídjóið af því!
Gónótt!

8 dagar
13. apríl 2007 klukkan 09:03
Í dag eru tveir brúðkaupshlutir á dagskrá. Sækja öll nauðsynleg vottorð í Þjóðskrá og fara til Jónu í litun og prufugreiðslu. Það er allt á svo góðu róli eftir power þriðjudaginn að ég er eiginlega hætt að vera stressuð. Bara hress og róleg sko.
Annars þá er ég hætt við að vera brún á brúðkaupsdaginn. Hendurnar á mér fylgja nefnilega ekki restinni, er með næpuhvítar hendur en fagurbrúna handleggi, þetta er ekki alveg að virka sko. En það er allt í kei
gaman að prufa þetta.
Núna er ég að fara með litluna mína til barnalæknis og svo fer hún ásamt systur sinni í pössun hjá mömmu og Fríðu á meðan ég fer í bæinn. Nóg að gera...

Málinu reddað
11. apríl 2007 klukkan 21:14
Eftir tvær svefnlausar nætur fór ég í bæinn. Ég s.s. komst að þessu kjóladrama á laugardaginn og hef ekki sofið dúr síðan! Helv... páskar! Skipulagsfríkið ég - vildi klára dæmið strax daginn eftir en þurfti að bííííða tvo páskadaga, ég var gjörsamlega að eipa á þessu.
Ennnn.... við mamma fórum í bæinn í gærmorgun og ég hringdi á brúðarkjólaleigurnar kl. 11:01 (strax eftir opnun) til að athuga hvort þær svo ólíklega ættu tíma fyrir mig samdægurs. Svo yndisleg kona í Tvö hjörtu bauð mér að koma kl. 13, svo að við önduðum töluvert léttar, við mamma. Fórum bara að versla í Rekstrarvörum, heimsóttum Finn í vinnuna og fórum út að borða á meðan við biðum.
Komum svo í Tvö hjörtu rétt rúmlega hálfeitt - soldið snemma í því en komumst samt strax að. Og svo gerðist hið ótrúlega, fyrsti kjóllinn sem ég mátaði var KJÓLLINN! Það var engin spurning. Ég mátaði fleiri og fleiri en var alltaf vissari og vissari með þann fyrsta. Hálftíma síðar gekk ég út, búin að panta kjólinn og ÞUNGU FARGI AF OKKUR LÉTT! Sjitt sko. Ég var svoooo stressuð. Fyndið líka að konan sagði okkur frá því að kl. 11 hringdi ég fyrst, svo önnur kona í sömu vandræðum og var hún líka að fara að gifta sig 21. apríl. Fyndið
En það náðist s.s. að klára þvílíkan haug af atriðum í gær. Kjóllinn var stærsti hausverkurinn, en við mamma náðum líka að versla í terturnar, sokkabuxur á stelpurnar, bóka neglur, lit & plokk, brúnkusprautun, staðfesta myndatökuna, forréttinn, brúðarvöndinn, panta áfengið, redda úrbeiningu á kjötinu, tala við kokkinn og hringja í kirkjuna. Algjör haugur af atriðum búinn og bara nokkur smáatriði og hringingar eftir. Frekar næs. Núna er ég bara komin í puntið, fór í brúnkusprautunina í dag og er núna 5 tímum síðar orðin fagurbrún að lit. Engin spurning með það að ég fer aftur í næstu viku
Það verður enginn Nói albínói sem gengur upp að altarinu eftir 10 daga 