Auglýsing

Klukkan

Leikur dagsins

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Málinu reddađ

11. apríl 2007 klukkan 21:14
Eftir tvær svefnlausar nætur fór ég í bæinn. Ég s.s. komst að þessu kjóladrama á laugardaginn og hef ekki sofið dúr síðan! Helv... páskar! Skipulagsfríkið ég - vildi klára dæmið strax daginn eftir en þurfti að bííííða tvo páskadaga, ég var gjörsamlega að eipa á þessu.

Ennnn.... við mamma fórum í bæinn í gærmorgun og ég hringdi á brúðarkjólaleigurnar kl. 11:01 (strax eftir opnun) til að athuga hvort þær svo ólíklega ættu tíma fyrir mig samdægurs. Svo yndisleg kona í Tvö hjörtu bauð mér að koma kl. 13, svo að við önduðum töluvert léttar, við mamma. Fórum bara að versla í Rekstrarvörum, heimsóttum Finn í vinnuna og fórum út að borða á meðan við biðum.

Komum svo í Tvö hjörtu rétt rúmlega hálfeitt - soldið snemma í því en komumst samt strax að. Og svo gerðist hið ótrúlega, fyrsti kjóllinn sem ég mátaði var KJÓLLINN! Það var engin spurning. Ég mátaði fleiri og fleiri en var alltaf vissari og vissari með þann fyrsta. Hálftíma síðar gekk ég út, búin að panta kjólinn og ÞUNGU FARGI AF OKKUR LÉTT! Sjitt sko. Ég var svoooo stressuð. Fyndið líka að konan sagði okkur frá því að kl. 11 hringdi ég fyrst, svo önnur kona í sömu vandræðum og var hún líka að fara að gifta sig 21. apríl. Fyndið Brosandi

En það náðist s.s. að klára þvílíkan haug af atriðum í gær. Kjóllinn var stærsti hausverkurinn, en við mamma náðum líka að versla í terturnar, sokkabuxur á stelpurnar, bóka neglur, lit & plokk, brúnkusprautun, staðfesta myndatökuna, forréttinn, brúðarvöndinn, panta áfengið, redda úrbeiningu á kjötinu, tala við kokkinn og hringja í kirkjuna. Algjör haugur af atriðum búinn og bara nokkur smáatriði og hringingar eftir. Frekar næs. Núna er ég bara komin í puntið, fór í brúnkusprautunina í dag og er núna 5 tímum síðar orðin fagurbrún að lit. Engin spurning með það að ég fer aftur í næstu viku Svalur Það verður enginn Nói albínói sem gengur upp að altarinu eftir 10 daga Koss
Frábært að þú fannst kjólinn. Skil vel að páskafríið hafi verið streeeessssandi!! En konan í 2 Hjörtum er ótrúleg ... hún valdi einn kjól á mig og það var bara the one :)

Gangi þér vel í loka loka undirbúningnum!!
#1
12. apríl 2007 klukkan 18:56
 
Hildur Halla
Guð minn almáttugur, ég er svo fegin að þurfa ekki að hafa áhyggjuraf svona stressi! Þetta myndi fara með mig og mína þessa dagana. En það er gott að skipulagsgúruinn Tinna getur tekið þessu svona létt og bara reddað málunum ;)

Sjáumst allavega 21. vonandi þó fyrr!
#2
12. apríl 2007 klukkan 20:08

Skrifa athugasemd