Yeah
16. apríl 2007 klukkan 23:48
Jæja jæja jæja. Þetta styttist óðfluga. Það er ekki laust við að það sé kominn spenningur í mannskapinn! Þessa dagana er verið að redda hinu og þessu, hringja í hinn og þennan, sækja hitt og þetta osfrv. Í dag t.d. þá sóttum við mamma mjöðinn góða sem við (og þið) ætlum að gæða okkur á á laugardaginn. Svo fer ég í prufugreiðslu nr. 2 á morgun og stelpurnar verða klipptar. Svo verður eiginlega mest að gera hjá okkur á miðvikudag og föstudag náttla. Fimmtudagurinn er asnalegur að því leyti að það er rauður dagur og því ekki allir þeir staðir opnir sem maður þyrfti að komast á.
Annars þá erum við tilvonandi hjónin líka bókuð í læknisheimsóknir á miðvikudaginn, allt til þess gert að við verðum ekki "haltur leiðir fatlaðan" á lau. Ég er btw hölt eftir smá slys í ungbarnasundi síðasta laugardag (don´t ask sko) og þarf að fá sprautu í hægra hnéð. Finnur þarf að fá nýtt gifsi þar sem hans núverandi er meira svart en hvítt.
En já, það er bara allt í gúddí en sem komið er. Finnur er reyndar eitthvað slappur ennþá eftir helgina, en hann var nefnilega TEKINN og steggjaður á föstudaginn. Hlakka til að sjá vídjóið af því!
Gónótt!

Kveðja
Sigurrós