3 dagar
18. apríl 2007 klukkan 08:46
Ég er komin í frí fram á þriðjudag. Mjög ljúft. Hér gengur allt prýðilega vel og mátulegur fiðringur kominn í alla. Ég er með einhvern flensuskít en ætla að fá 3 daga pensilín hjá doksa á eftir og vera orðin stálslegin á laugardaginn
Þrátt fyrir það þá erum við mamma á leiðinni í Rvk á eftir til að sækja brúðarkjólinn, fötin hans Finns og tertustandinn. Þurfum líka aðeins að versla og svona. Finnur og Arndís María fara eftir hádegi í dag að sækja allan matinn upp í sveit, úrbeining á morgun. Gréta frænka bakar tertur eins og vindurinn þessa dagana og allt er bara að smella. Imba frænka mín elskuleg kemur svo austur í dag til að hjálpa uppáhaldsfrænku sinni með restina. Bara gaman!
Í gær var prufugreiðsla númer 2 og var ákveðið að hún skyldi notuð á laugardaginn, almenn sátt um það
Stelpurnar mínar fengu líka klippingu og eru þrusufínar og sætar 
Við ætlum líka að passa okkur á að njóta þessara síðustu daga í botn, þessi tími kemur sko ekki aftur