20. apríl 2007 klukkan 08:53
Jæja góðan daginn. Helsta áhyggjuefnið þessa stundina er veðrið á morgun. Ég var fyrir lifandis löngu búin að panta sól og sumar á þessum degi, sérstaklega þar sem Sumardagurinn fyrsti var í gær og því engin ástæða til annars en að verða við þessari bón minni. Ennnn.... þetta hérna gefur ekki til kynna að ég fái ósk mína uppfyllta. Svindl!
En nóg um það. Við erum hér sultuslök kærustuparið. Eigum aðeins smotteríis snúninga eftir fyrir hádegi, svo smá fótadekur áður en allt verður vitlaust seinnipartinn. Við fáum salinn fljótlega eftir hádegi og hann verður græjaður væntanlega á tveimur núll einni. Ég fer svo að skoða brúðarvöndinn kl. 17 og svo er æfing í kirkjunni kl. 18. Eftirvæntingarhnúturinn er farinn að gera vart við sig og á mögulega eftir að breytast í magapest síðar í dag
Góðar fréttir samt! Flensan virðist hafa ákveðið að skilja við mig, bara smá hósti eftir en ekkert til að tala um. Frekar gott 
Látum í okkur heyra vonandi á morgun

En nóg um það. Við erum hér sultuslök kærustuparið. Eigum aðeins smotteríis snúninga eftir fyrir hádegi, svo smá fótadekur áður en allt verður vitlaust seinnipartinn. Við fáum salinn fljótlega eftir hádegi og hann verður græjaður væntanlega á tveimur núll einni. Ég fer svo að skoða brúðarvöndinn kl. 17 og svo er æfing í kirkjunni kl. 18. Eftirvæntingarhnúturinn er farinn að gera vart við sig og á mögulega eftir að breytast í magapest síðar í dag
Látum í okkur heyra vonandi á morgun

kær kveðja
HArpa