Auglýsing

Klukkan

Leikur dagsins

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Hveitibrauðsdagarnir

26. apríl 2007 klukkan 21:30
Mjamm þeir líða frekar furðulega. Eiginmaðurinn minn losnaði úr gifsinu í gær - vei fyrir því! Hann er búinn að vera að vinna langt fram á kvöld í þessari viku, þannig að lítið sér maður hann. Í fyrrinótt veiktist ég af svæsinni upp- og niðurpest og er búin að vera léleg í dag líka. Ætla þó í vinnu á morgun, enda búin að mæta í einn heilan dag og svo einn og hálfan tíma í dag. Ekki góður árangur það.

Eníveis. Ég er búin að setja inn frásögn af brúðkaupsdeginum, á kvöldið eftir, geymi það til morguns. Mér gengur bölvanlega að setja inn fleiri myndir á þessa síðu, það gengur bara alls ekki hjá mér! Skil það ekki.

Langar líka að athuga hvort að einhverjir eigi myndir frá deginum og séu til í að senda mér? Á fáar ennþá og langar að fá fleiri sjónarhorn og bara sjá allt aftur Svalur skiljiði! Er alveg að eipa af spenningi að fá að sjá einhverjar myndir! Plís fólk Tala af sér *hvolpaaugun*

Skrifa athugasemd