Skraut komið í hús
04. október 2006 klukkan 00:04
Pantaði mér polyborða um daginn, svona til að setja á bílinn. Jamm hann kom áðan, það var nett fyndið - smá fiðringur í kroppinn hehe ;)
Annars þá er lítið að gerast í undirbúningi þessa dagana, bara svona spegúleringar og hitt og þetta. Við erum alltof róleg held ég. Hei jú, ég er að fara á boðskortafund í vikunni, það er allavega eitthvað hehe :)
Annars þá er lítið að gerast í undirbúningi þessa dagana, bara svona spegúleringar og hitt og þetta. Við erum alltof róleg held ég. Hei jú, ég er að fara á boðskortafund í vikunni, það er allavega eitthvað hehe :)
Boðskortafundur
29. september 2006 klukkan 18:03
Í mig hringdi frönsk kona áðan og bauð mér að koma á boðskortafund hjá sér. Ég sendi henni nefnilega póst fyrir nokkrum dögum en fékk ekkert svar, fyrr en í dag. Hún talar erfiða íslensku og átti ég verulega erfitt með að skilja hana, en allavega þá ætla ég að kíkja á hana í næstu viku og sjá hvað hún er með sniðugt. Vona að það komi vel út, ég er í mestu vandræðum með þessi boðskort nefnilega. Nenni ekki að gera þau sjálf, en samt verða þau að vera eins og ÉG VIL hafa þau hehehe
flókið? I think so 
Brúðargjafir
27. september 2006 klukkan 17:03
Smá pæling í gangi hérna. Nú er ég ekki hrifin af því að gera gjafalista sem inniheldur eitthvað very bjútífúl postulínsstell. Stell sem á eftir að geymast inn í skáp 364 daga á ári og bara notað á jólunum (ef það). Við erum bæði svona skrítin með þetta. Hvernig á maður þá að haga sér með þessa gjafalista? Er hallló að segja - hey ég er með gjafalista í IKEA! Frusss
veit ekki sko. Við ætlum að pæla soldið í þessu en ég væri alveg til í að heyra hvað ykkur finnst um þetta, hvernig á maður að haga sér með þetta þegar maður er svona skrítinn....? 
Það sem komið er - so far
25. september 2006 klukkan 23:20
Í dag eru eftirfarandi atriði eru komin í "ferli" ![]()
*Kirkja - tjékk
*Prestur - tjékk
*Salur - tjékk
*Ljósmyndari - tjékk
*Búið að bóka söngkonu í kirkju - tjékk
*Búið að panta kjöt og fá geymslupláss - tjékk
*Búið að bóka tónlistarmenn f veislu - tjékk
*Búin að panta bílaskraut - tjékk
*Svo ætlar Gugga gella að sjá um fegrun, þeas förðun
Vonandi lengist tjékklistinn hjá mér bráðum ![]()
Brúðurin bloggar
25. september 2006 klukkan 19:06
Jæja það var kominn tími til - einungis tæpir 7 mánuðir til stefnu og allt að verða crazy 

Næstu daga mun bætast við fullt af upplýsingum, gagnlegum og ekki svo gagnlegum. Upplýsingar um brúðkaupið, hvernig undirbúningurinn gengur osfrv.
Gaman að því!
Næstu daga mun bætast við fullt af upplýsingum, gagnlegum og ekki svo gagnlegum. Upplýsingar um brúðkaupið, hvernig undirbúningurinn gengur osfrv.
Gaman að því!
