Jæja!
07. maí 2007 klukkan 21:16
Það er alveg spurning um að leggja þessari flottu smartís brúðkaupssíðu. Nú erum við búin að vera gift í rúmlega tvær vikur og líkar vel, ekki spurning! Erum búin að fá myndirnar frá ljósmyndaranum og erum þvílíkt ánægð, nú er bara eftir að fá myndirnar og gestabókina frá henni Írisi, þá fer þetta að verða komið. Við erum bara þvílíkt og endalaust ánægð með þennan tíma og daginn okkar að sjálfsögðu, svo ég tali nú ekki um alla hjálpina sem við fengum, boy oh boy!
Ætla núna að færa mig aftur á gamla bloggið mitt (www.tinnhildur.blogspot.com), en þetta grey (síðan þeas.) set ég í favourites og skoða svona spari
Er að vonast til að ég geti sett myndirnar sem ég á núna, inn á myndasíðu svo það sé hægt að skoða. Það hefur gengið vægast sagt illa hjá mér hingað til.
Takk fyrir að vera til!
Tinna og Finnur líka
Ætla núna að færa mig aftur á gamla bloggið mitt (www.tinnhildur.blogspot.com), en þetta grey (síðan þeas.) set ég í favourites og skoða svona spari
Takk fyrir að vera til!
Tinna og Finnur líka
